Stjórn og starfshættir stjórnar
Stjórn hefur sett sér starfsreglur sem eru aðgengilegar á www.felagsbustadir.is. Þar er að finna lýsingu á valdsviði
stjórnar, verksviði stjórnar gagnvart framkvæmdastjóra, reglur um skiptingu starfa innan stjórnarinnar, fundarsköp,
hæfi stjórnarmanna, þagnarskyldu, upplýsingagjöf framkvæmdastjóra til stjórnar og fleiri þætti er varða
framkvæmd starfa stjórnarinnar. Á árinu 2022 voru haldnir 9 stjórnarfundir auk aðalfundar sem fram fór í mars þar
sem stjórn félagsins var endurkjörin og skipaðir eftirtaldum:
Stjórn félagsins leggur áherslu á að viðhalda góðum stjórnarháttum. Stjórn og stjórnendur félagsins taka mið af
Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja, 5. útgáfu, gefnum út af Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins
og Kauphöll Íslands hf. í maí 2015. Félagið fylgir einnig ákvæðum er varða stjórnarhætti fyrirtækja í lögum um
hlutafélög nr. 2/1995, um ársreikninga nr. 3/2016, samþykktum félagsins og starfsreglum stjórnar. Félagið er með
skráð skuldabréf í Kauphöll Íslands og fylgir þeim reglum sem gilda um skráð félög. Samþykktir félagsins kveða
einnig á um fyrirkomulag ýmissa þátta í starfseminni og eru aðgengilegar á vefsíðu þess.
Stjórnarhættir félagsins samræmast í meginatriðum ákvæðum Leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja. Frávik
félagsins skýrast af umfangi þess og eignarhaldi, en Reykjavíkurborg er eini eigandi félagsins og tilnefnir stjórn.
Hjá félaginu hafa því ekki verið skipaðar tilnefninganefnd og starfskjaranefnd. Þá birtir félagið ekki tilteknar
upplýsingar á heimasíðu í tengslum við hluthafafundi. Upplýsingarnar eru aðgengilegar hluthafa félagsins í
samræmi við lög og samþykktir.
Á árinu 2022 var stjórn félagsins, líkt og frá stofnun félagsins árið 1997, skipuð þremur stjórnarmönnum kjörnum
til eins árs í senn á aðalfundi félagsins eftir tilnefningar frá Reykjavíkurborg, eiganda félagsins. Í samræmi við
breytingar á eigandastefnu Reykjavíkurborgar samþykkti borgarráð á fundi sínum 15. desember 2022 tillögu
nefndar um tilnefningar og kosningar til stjórnar fyrirtæka í eigu Reykjavíkurborgar, þar á meðal hjá
Félagsbústöðum. Tilnefndir voru fimm einstaklingar í stjórnina og fimm til vara. Á aukaaðalfundi Félagsbústaða
sem haldinn var 2. febrúar 2023 var tilnefningin lögð fyrir og staðfest. Stjórnina skipa, Haraldur Flosi Tryggvason
sem kjörinn var formaður stjórnar, Ellý Alda Þorsteinsdóttir sem kjörin var varaformaður, Kjartan Magnússon,
Magnús Davíð Norðdalh og Ragnheiður Björk Halldórsdóttir. Varastjórn skipa Helgi Áss Grétarsson, Rannveig
Ernudóttir, Steinunn Bergmann, Kolbrún Garðarsdóttir og Arent Orri Jónsson.
Stjórn ber meginábyrgð á starfsemi félagsins og fer með æðsta vald í málefnum þess á milli hluthafafunda
samkvæmt lögum og samþykktum félagsins. Meginhlutverk stjórnar er að annast um að nægilegt eftirlit sé haft
með bókhaldi og meðferð fjármuna félagsins, að hafa yfirumsjón með starfseminni og eftirlit með stjórnendum.
Stjórn sér um ráðningu og uppsögn framkvæmdastjóra og metur frammistöðu hans reglulega. Þá tekur stjórn
óvenjulegar og mikilsháttar ákvarðanir í rekstri félagsins og sér til þess að það starfi í samræmi við gildandi lög og
reglur.
* Ellý Alda Þorsteinsdóttir er fædd 1961 og tók sæti í stjórn félagsins á árinu 2022. Hún lauk starfsréttindanámi í
félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands og meistaranámi í stjórnun frá Háskólanum í Kent árið 1991. Hún hefur starfað
að málefnum félagsþjónustu hjá Reykjavíkurborg og á skrifstofu sviðsstjóra á velferðarsviði sem skrifstofustjóri.
Hún er óháður stjórnarmaður.
* Kjartan Magnússon er fæddur 1967 og tók sæti í stjórn félagsins á árinu 2022. Hann las sagnfræði við Háskóla
Íslands. Kjartan starfaði sem blaðamaður á Morgunblaðinu frá 1991-1999 og sinnti þar lengst af fréttum um
viðskipti og atvinnulíf. Kjartan er kjörinn borgarfulltrúi og þannig háður stjórnarmaður.
* Haraldur Flosi Tryggvason, er fæddur árið 1966, stjórnarformaður, tók sæti í stjórn félagsins þann 25. mars
2015. Hann er lögmaður og starfar hjá LBM Mandat slf. Hann hefur áður fengist við rekstur, stjórnun og kennslu.
Hann er óháður stjórnarmaður.
* Magnús Davíð Norðdalh er fæddur 1982 og tók sæti í stjórn félagsins á árinu 2022. Magnús lauk embættisprófi í
lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2014. Sama ár fékk Magnús lögmannsréttindi og stofnaði eigin
lögmannsstofu. Áður starfaði hann hjá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, Logos lögmannsstofu og
Vátryggingafélagi Íslands. Þá er Magnús með B.A. gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands. Magnús er kjörinn
borgarfulltrúi og þannig háður stjórnarmaður.
Ársreikningur Félagsbústaða hf. 2022 - Fjárhæðir í þús. kr.