2012-05-02 17:00:00 CEST

2012-05-02 17:00:04 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjanesbær - Fyrirtækjafréttir

Reykjanesbær hefur ákveðið að selja 16,65% hlut í HS Veitum hf. og hefur sett hlutinn í söluferli


Reykjanesbær hefur ákveðið að selja 16,65% hlut í HS Veitum hf. og hefur sett
hlutinn í söluferli 

- Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur verið falið að annast söluferlið
- Söluferlið er opið öllum fjárfestum sem uppfylla tilgreind skilyrði

Eigendur að 34,38% hlut í HS Veitum hf. hafa falið Fyrirtækjaráðgjöf
Íslandsbanka hf. að annast formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á
eignarhlutum sínum í félaginu. Þessi hlutur er í dag í eigu Reykjanesbæjar,
Orkuveitu Reykjavíkur, Grindavíkurbæjar, Sandgerðisbæjar, Sveitarfélagsins
Garðs og Sveitarfélagsins Voga. Skiptast auglýstir hlutir svo: 

Reykjanesbær auglýsir 222.492.830 hluti eða 16,65% heildarhlutafjár. Ekki eru
auglýstir 669.550.929 hlutir eða 50,1% heildarhlutafjár í HS Veitum. 

Orkuveita Reykjavíkur auglýsir 221.609.343 hluti eða 16,58% heildarhlutafjár.

Grindavíkurbær auglýsir 6.802.886 hluti eða 0,51% heildarhlutafjár.

Sandgerðisbær auglýsir 2.979.974 hluti eða 0,22% heildarhlutafjár. Ekki eru
auglýstir 1.336.429 hlutir eða 0,1% heildarhlutafjár. 

Garður auglýsir 4.277.099 hluti eða 0,32% heildarhlutafjár.

Vogar auglýsa 1.331.573 hluti eða 0,10% heildarhlutafjár.

HS Veitur hf. eru dreifiveita rafmagns samkvæmt Raforkulögum nr. 65/2003 og
annast að auki dreifingu heits vatns og ferskvatns á starfssvæðum sínum.
Höfuðstöðvar félagsins eru í Reykjanesbæ en jafnframt eru starfsstöðvar í
Árborg, Hafnarfirði og í Vestmannaeyjum. 

Söluferlið er opið öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylla skilyrði um að geta
talist fagfjárfestar samkvæmt lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, auk
aðila sem búa yfir fullnægjandi þekkingu og reynslu og geta sýnt fram á
eiginfjárstöðu umfram 300 milljónir kr. Seljendur áskilja sér þó rétt til þess
að takmarka aðgang að söluferlinu, meðal annars í þeim tilvikum þegar fyrir
hendi eru lagalegar takmarkanir á því að fjárfestir eignist hlut í félaginu,
svo sem vegna samkeppnisreglna. 

Áhugasömum fjárfestum er bent á að hafa samband við Fyrirtækjaráðgjöf
Íslandsbanka í síma 440 4000 eða með því að senda tölvupóst á netfangið
hsveitur2012@islandsbanki.is. Áhugasamir fjárfestar þurfa að fylla út
trúnaðaryfirlýsingu ásamt því að leggja fram nauðsynlegar upplýsingar og gögn
sem staðfesta að ofangreind skilyrði séu uppfyllt. Í kjölfarið fá fjárfestar
afhentar frekari upplýsingar um tímasetningar og skilmála söluferlisins auk
upplýsinga um fjárhag og starfsemi félagsins.