|
|||
![]() |
|||
2015-03-19 18:53:08 CET 2015-03-19 18:53:33 CET REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - Niðurstöður hluthafafundaFjarskipti hf. : Niðurstöður aðalfundar 19. mars 2015Á aðalfundi Fjarskipta hf. í dag, 19. mars 2015, voru samþykktar tillögur um ráðstöfun hagnaðar félagsins, arðgreiðslustefnu, starfskjarastefnu, þóknun til stjórnarmanna, kosningu endurskoðunarstofu, breytingar á samþykktum, þ.m.t. um lækkun hlutafjár, kynjahlutföll í stjórn og að getið verði um heimild til kaupa á eigin hlutum í sérstökum viðauka við samþykktir félagsins. Þá var samþykkt tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum. Stjórn félagsins fyrir næsta starfsár var sjálfkjörin. Hún hefur skipt með sér verkum og er skipuð þannig: Í aðalstjórn: * Heiðar Guðjónsson, formaður stjórnar, kt. 220472-3889 * Hildur Dungal, varaformaður stjórnar, kt. 140571-3859 * Anna Guðný Aradóttir, meðstjórnandi, kt. 110156-7669 * Hjörleifur Pálsson, meðstjórnandi, kt. 281163-4269 * Vilmundur Jósefsson, meðstjórnandi, kt. 240849-7399 Í varastjórn: * Agla Elísabet Hendriksdóttir, kt. 300167-5869 * Yngvi Halldórsson, kt. 300777-5039 Þá var sjálfkjörið í sæti tveggja nefndarmanna af þremur í tilnefningarnefnd félagsins. Þessir tveir nefndarmenn eru: * Ragnheiður S. Dagsdóttir, kt. 200168-3569 * Ásdís Jónsdóttir, kt. 160972-3359 Niðurstöður aðalfundar má að öðru leyti sjá í meðfylgjandi viðhengi. [HUG#1904769] |
|||
|