2014-01-14 15:40:10 CET

2014-01-14 15:41:10 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Lánsfjármögnun Regins Atvinnuhúsnæðis lokið


Gengið var í dag frá sölu eignatryggðra skuldabréfa til fjármögnunar á Reginn
atvinnuhúsnæði ehf., sem er dótturfélag Regins hf. Fjármögnunin er verðtryggð
með jöfnum afborgunum til 30 ára og ber 3,85% fasta vexti en gjalddagar vaxta
og afborgana eru tvisvar á ári. Heimilt er að greiða upp lánið eftir 5 ár.
Lánið verður nýtt til uppgreiðslu óhagstæðri lána og lána sem falla á gjalddaga
seinna á árinu. Heildarstærð skuldabréfaflokksins er 9,5 milljarðar og var sala
á öllum flokknum kláruð í dag. Skuldabréf tengd fjármögnuninni verða skráð í
Kauphöll Íslands, Nasdaq OMX Iceland en Íslandsbanki verður umsjónaraðili
skráningar. Lánveitandi og útgefandi eignatryggðu skuldabréfanna er REG3A
fjármögnun, fagfjárfestasjóður en rekstraraðili sjóðsins er ALDA sjóðir hf. 

Áætlaður ávinningur félagsins vegna lægri vaxtakjara er um 50 m.kr. á
ársgrundvelli. 

Auk endurfjármögnunar Regins atvinnuhúsnæðis hefur einnig verið lokið við
endurfjármögnun á dótturfélögum félagsins sem hýsa Egilshöll og Smáralind og er
þetta því skref í að ljúka við endurfjármögnun samstæðu Regins hf. 

Reginn hf. er íslenskt fasteignafélag sem fjárfestir í, leigir út og annast
rekstur á atvinnuhúsnæði. Fasteignasafn Regins telur 45 fasteignir og er
heildarfermetrafjöldi fasteignasafnsins um 192 þúsund fermetrar. 

ALDA sjóðir hf. er rekstrarfélag verðbréfa- og fjárfestingasjóða. Félagið rekur
auk þess fagfjárfestasjóði. 

Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka var umsjónaraðili útgáfunnar. Verðbréfamiðlun
bankans sá um sölu bréfanna og verður jafnframt með viðskiptavakt á
skuldabréfunum í Kauphöll Íslands. 

Nánari upplýsingar veitir:


Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

Sími: 512 8900 / 899 6262