2012-01-17 17:50:18 CET

2012-01-17 17:51:19 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsvaki - Fyrirtækjafréttir

Afskráning Markaðsbréfa Landsbankans – stuttra


Stjórn Landsvaka hf., rekstrarfélag verðbréfa- og fjárfestingasjóða
Landsbankans, hefur tekið ákvörðun um samruna verðbréfasjóðsins Markaðsbréfa
Landsbankans - stuttra við verðbréfasjóðinn Markaðsbréf Landsbankans - löng. 
Samruninn er framkvæmdur með hagsmuni hlutdeildarskírteinishafa að leiðarljósi.
 Aðstæður fyrir blandaðan skuldabréfasjóð (sjóður sem fjárfestir í
ríkisskuldabréfum, skuldabréfum sveitarfélaga, fjármálafyrirtækja og annarra
fyrirtækja) með stuttan líftíma  eins og Markaðsbréf Landsbankans-stutt eru
ekki góðar vegna lítils framboðs og fer samruninn fram í því ljósi. 

Hlutdeildarskírteinishafar sjóðsins munu þann 26. janúar næstkomandi fá bréf
þar sem samruninn verður nánar kynntur.  Samruninn fer fram þann 16. febrúar
næstkomandi með flutningi allra verðbréfa í eigu Markaðsbréfa Landsbankans
-stuttra í Markaðsbréf Landsbankans - löng. Eign hlutdeildarskírteinishafa
verður flutt sjálfkrafa yfir í Markaðsbréf Landsbankans löng og enginn
kostnaður fellur á  hlutdeildarskírteinishafa við þessa aðgerð. 

Beiðni um afskráningu sjóðsins Markaðsbréfa Landsbankans - stuttra hefur verið
send Kauphöll. 



Frekari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Landsvaka hf. Ari Skúlason í síma
410-7406