2008-09-19 18:05:37 CEST

2008-09-19 18:06:37 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Nýsir hf. - Fyrirtækjafréttir

- Birtingu uppgjörs frestað


Nýsi  hf.  hefur í dag, 19. september 2008, borist tilboð frá Landsbanka
Íslands hf. og Kaupþingi banka hf. í allar eignir félagsins. 

Ef tilboðunum  verður tekið munu  þau hafa veruleg áhrif á efnahagsreikning
félagsins. 

Félagið mun meta tilboðin og kynna þau síðan  fyrir kröfuhöfum þar með talið
kröfuhöfum  þeirra verðbréfa sem tekin hafa verið til viðskipta í 
Kauphöllinni. 

Félagið mun því  seinka  birtingu á árshlutareikningi á meðan viðræður um
tilboðin fara fram. 

Nánari upplýsingar veitir:
Höskuldur Ásgeirsson, forstjóri Nýsis hf., í síma 897 4525