|
|||
2009-10-29 11:38:43 CET 2009-10-29 11:39:43 CET REGULATED INFORMATION Sveitarfélagið Álftanes - Fyrirtækjafréttir- Samþykkt að senda Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga tilkynningu í samræmi við ákvæði 75. gr. sveitastjórnarlagaÁ 73. fundi bæjarstjórnar Álftaness, miðvikudaginn 28. október, var samþykkt við fyrri umræðu tillaga meirihluta bæjarstjórnar um að senda Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga tilkynningu í samræmi við ákvæði 75. gr. sveitarstjórnarlaga. Tillagan þarfnast tveggja umræðna í bæjarstjórn og verður síðari umræða um málið 4. nóvember n.k. Í 75. grein sveitarstjórnarlaga segir: „Komist sveitarfélag í fjárþröng þannig að sveitarstjórn telur sér eigi unnt að standa í skilum skal hún tilkynna það til eftirlitsnefndar skv. 74. gr. Ákvörðun um slíka tilkynningu skal tekin eftir tvær umræður í sveitarstjórn. Eftirlitsnefnd skal þá tafarlaust láta fara fram rannsókn á fjárreiðum og rekstri sveitarfélagsins og leggja síðan fyrir sveitarstjórn að bæta það sem áfátt kann að reynast innan hæfilegs frests. Eftirlitsnefnd er heimilt að grípa til aðgerða skv. 2. mgr. hafi sveitarstjórn ekki sinnt aðvörun nefndarinnar skv. 2. mgr. 74. gr. eða ef nefndin telur viðbrögð sveitarstjórnar í framhaldi af aðvörun nefndarinnar ófullnægjandi. Komi í ljós við rannsókn að fjárhagur sveitarfélags sé slíkur að það geti ekki með eðlilegum rekstri staðið straum af lögboðnum útgjöldum eða öðrum skuldbindingum sínum er ráðuneytinu heimilt að tillögu eftirlitsnefndar að veita sveitarfélaginu styrk eða lán úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til þess að koma fjárhag sveitarfélagsins á réttan kjöl með þeim skilyrðum sem ráðuneytið setur. Ráðuneytið getur heimilað eða lagt fyrir sveitarstjórn í því tilviki sem hér um ræðir og að tillögu eftirlitsnefndar að leggja álag á útsvör og fasteignaskatta sem nemi allt að 25%.“ Meðfylgjandi er endurskoðuð fjárhagsáætlun |
|||
|