|
|||
2017-08-22 13:31:50 CEST 2017-08-22 13:31:50 CEST REGULATED INFORMATION Skeljungur hf. - FjárhagsdagatalSkeljungur: Uppgjör 2. ársfjórðungs 2017 birt mánudaginn 28. ágúst - kynningarfundur haldinn 29. ágúst kl. 8:30Skeljungur hf. mun birta uppgjör annars ársfjórðungs 2017 eftir lokun markaðar mánudaginn 28. ágúst nk. Af því tilefni býður Skeljungur til opins kynningarfundar þriðjudaginn 29. ágúst, kl. 8:30, á hótel Hilton Nordica í fundarsal D. Á fundinum verður uppgjörið kynnt, auk þess sem spurningum fundargesta verður svarað. Boðið verður upp á léttar veitingar frá kl. 8:15. Kynningarefni af fundinum verður jafnframt gert aðgengilegt á heimasíðu Skeljungs, www.skeljungur.is/um-skeljung/fjarfestar/. Nánari upplýsingar veitir Valgeir M. Baldursson, forstjóri; fjarfestar@skeljungur.is, s: 444-3000 / 840-3022. [] |
|||
|