2010-03-16 16:14:06 CET

2011-09-16 12:30:42 CEST


REGLERAD INFORMATION

Isländska
HB Grandi hf. - Annual report (is)

Ársreikningur 2009


Afkoma HB Granda hf. árið 2009

•  Rekstrartekjur ársins voru 117 m€, en voru 124 m€ árið áður

•  EBITDA var 32 m€ (27,4 %) en var 30 m€ (23,8 %) árið 2008

•  Hagnaður ársins var 13 m€, en var 16 m€ árið áður

Sjá viðhengi: Tafla

Rekstur ársins 2009
Rekstrartekjur HB Granda hf. árið 2009 námu 117 m€, samanborið við 124 m€ árið
áður.  Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 32 m€ eða 27,4% af
rekstrartekjum, en var 30 m€ eða 23,8% árið áður.  Áhrif fjáreignatekna og
fjármagnsgjalda voru neikvæð um 2,9 m€.  Áhrif hlutdeildarfélaga voru neikvæð
um 2,4 m€, einkum vegna slæmrar afkomu fiskeldis í Síle.  Hagnaður fyrir
tekjuskatt var 16 m€, en hagnaður ársins var 13 m€. 

Mun minna veiddist af ufsa og karfa árið 2009 en árið áður, bæði á
frystitogurum og ísfisktogurum.  Á móti kom að veiði frystitogara á gullaxi og
úthafskarfa jókst verulega á milli ára, sem og þorskveiðar ísfisktogara. 

Eingöngu var gefinn út takmarkaður rannsóknarkvóti á loðnu, en árið áður veiddu
skip félagsins 31.000 tonn.  Einnig minnkaði verulega afli á íslenskri síld í
kjölfar sýkingar stofnsins.  Á hinn bóginn jókst afli á norsk-íslenskri síld
umtalsvert og við bættust veiðar á gulldeplu. 

Hjá félaginu unnu að meðaltali 622 starfsmenn á árinu.  Laun og launatengd
gjöld námu samtals 36,7 m€ (6,3 milljarðar króna samanborið við 5,4 milljarða
árið 2008). 


Efnahagur
Heildareignir félagsins námu 289 m€ í lok árs 2009. Þar af voru fastafjármunir
247 m€ og veltufjármunir 42 m€.  Í árslok námu heildarskuldir félagsins 156 m€
og eigið fé 133 m€. Eiginfjárhlutfall var 45%, en var 41% í lok árs 2008. 

Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri nam á árinu 33,2 m€.  Þar af var 9,6 m€ varið í nettó
fjárfestingar og 18,0 m€ í fjármögnunarhreyfingar, einkum afborganir
langtímalána (17,2 m€).  Hækkun á handbæru fé nam því 5,6 m€ og var handbært fé
í árslok 12,0 m€. 

Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna
Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi
ársins 2009 (1 evra = 172,7 kr) verða tekjur 20,2 milljarðar króna, EBITDA 5,5
milljarðar og hagnaður 2,3 milljarðar.  Séu niðurstöður efnahagsreiknings
reiknaðar til íslenskra króna á lokagengi ársins 2009 (1 evra = 179,9 kr) verða
eignir samtals 51,9 milljarðar króna, skuldir 28,0 milljarðar og eigið fé 23,9
milljarðar. 

Skipastóll og afli
Í skipastól HB Granda hf. eru 5 frystitogarar, 3 ísfisktogarar og 4
uppsjávarfiskveiðiskip. 

Á árinu 2009 var afli skipa félagsins 48 þúsund tonn af botnfiski og 100 þúsund
tonn af uppsjávarfiski. 

Aðalfundur
Aðalfundur HB Granda verður haldinn föstudaginn 23. apríl 2010 í matsal
félagsins við Norðurgarð í Reykjavík og hefst klukkan 17:00.  Stjórn félagsins
leggur til að greiddur verði 12% arður af nafnverði hlutafjár, þ.e. arðgreiðsla
að fjárhæð 204 millj. kr (um 1,1 millj. evra á lokagengi ársins 2009), sem
samsvarar 0,9% af eigin fé eða 8,7% af hagnaði ársins. 

Fjárhagsdagatal
Aðalfundur		23. apríl 2010
Birting ársskýrslu	23. apríl 2010
Arðgreiðsludagur	7. maí 2010
Hálfsársuppgjör	23.-27. ágúst 2010
Ársuppgjör 2010	14.-18. mars 2011