2015-11-06 14:49:35 CET

2015-11-06 14:50:36 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Vátryggingafélag Íslands hf. - Hluthafafundir

Framboð til stjórnar VÍS og krafa um margfeldiskosningu á hluthafafundi 10. nóvember 2015.


Framboðsfrestur til stjórnar Vátryggingafélags Íslands hf. rann út í gær þann
5. nóvember sl. Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í
stjórn félagsins: 



Til aðalstjórnar:

Bjarni Brynjólfsson

Guðmundur Þórðarson

Helga Jónsdóttir

Herdís Fjeldsted

Jostein SØrvall

Jóhann Halldórsson

Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir



Til varastjórnar:

Andri Gunnarsson

Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir

Davíð Harðarson



Er það mat stjórnar að öll framboð séu gild, sbr. 63. gr. a hlutafélagalaga, og
að allir frambjóðendur séu óháðir VÍS. Enginn hluthafi í VÍS á 10% hlutafjár í
félaginu eða meira. Ekki þarf því að meta óhæði gagnvart stórum hluthöfum. 

Nánari upplýsingar um frambjóðendur eru í viðhengi.

Krafa um margfeldiskosningu

Stjórn VÍS hefur borist krafa um að beitt verði margfeldiskosningu til
kosningar stjórnar VÍS sem fram fer á hluthafafundinum. Krafan var send til
stjórnar innan tilskilins frests og barst frá hluthöfum sem hafa yfir að ráða
meira en 10% hlutafjár, sbr. 7. mgr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995.
Margfeldiskosningu verður því beitt við stjórnarkjörið. 

Margfeldiskosning fer fram með eftirfarandi hætti: Kosið skal á milli
einstaklinga. Gildi hvers atkvæðis skal margfaldað með fjölda þeirra
stjórnarmanna sem kjósa skal og má hluthafi skipta atkvæðamagni sínu, þannig
reiknuðu, í hverjum þeim hlutföllum, sem hann sjálfur kýs, á jafnmarga menn og
kjósa skal eða færri. Ef ekki er á atkvæðaseðli getið skiptingar atkvæða á
milli þeirra sem þau eru greidd skal þeim skipt að jöfnu. 

Ákvæði um kynjahlutföll í samþykktum VÍS

Í 3. mgr. 15. gr. samþykkta félagsins kemur fram að gæta skuli þess að
kynjahlutfall í stjórn og varastjórn sé sem jafnast og að hlutfall hvors kyns
sé aldrei lægra en 40%. Í 6. mgr. sömu greinar segir eftirfarandi: 

„Náist kynjahlutföll 3. mgr. 15. gr. ekki við kosningu stjórnar á hluthafafundi
skal sá er fékk flest atkvæði af þeim sem náðu ekki kjöri, og er af því kyni
sem hallar á, taka sæti þess er fæst atkvæði fékk af þeim sem náðu kjöri, og er
af fjölmennara kyninu. Hafi slík kynjahlutföll ekki enn náðst skal sá er fékk
næstflest atkvæði af þeim sem náðu ekki kjöri, og er af því kyni sem hallar á,
taka sæti þess er næstfæst atkvæði fékk af þeim sem náðu kjöri, og er af
fjölmennara kyninu.“