2009-05-15 18:00:35 CEST

2009-05-15 18:01:35 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Bakkavör Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Skuldabréf á gjalddaga 15. maí og viðræður við skuldabréfaeigendur


Frá 9. desember 2008 hefur félagið tilkynnt að það eigi í viðræðum við
skuldabréfaeigendur í þeim tilgangi að framlengja gjalddaga á skuldabréfum
félagsins sem skráð eru í Kauphöllinni, NASDAQ OMX Iceland. 

Félagið á í viðræðum við stærstu skuldabréfaeigendur varðandi framlengingu
bréfanna. Félagið mun hins vegar ekki geta staðið skil á skuldabréfaflokki BAKK
03 1 sem er á gjalddaga í dag, 15. maí.  Stjórn félagsins er hins vegar
fullviss um að viðræðurnar muni skila árangri og að gjalddagi skuldabréfanna
fáist framlengdur. Félagið mun upplýsa um gang viðræðna eins og kostur er. 

Félagið tilkynnti 31. mars að það hefði tryggt fjármögnun allra rekstrarfélaga
samstæðunnar til næstu þriggja ára eða fram til 30. mars 2012. Þessir samningar
tryggja félaginu fullnægjandi rekstrarfjármögnun á tímabilinu og sýna jafnframt
tiltrú og stuðning lánveitenda við starfsemi Bakkavarar. 



Tengiliðir:	

Ísland:
Fjárfestatengsl
Snorri Guðmundsson
Bakkavör Group hf	
Sími: 550 9710
Netfang: investor.relations@bakkavor.com

Utan Íslands:
Fiona Tooley
Citigate Dewe Rogerson
Sími: +44 (0) 7785 703523/ +44 (0)121 455 8370
Netfang: fiona.tooley@citigatedr.co.uk