|
|||
2009-05-15 18:18:50 CEST 2009-05-15 18:19:31 CEST REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - ÁrshlutareikningarÁrshlutareikningur Orkuveitu Reykjavíkur tímabilið 1.1. til 31.3. 2009Afkoma Orkuveitu Reykjavíkur var jákvæð um 1,8 milljarða króna fyrstu þrjá mánuði ársins 2009. Á sama tímabili 2008 varð tap að fjárhæð 17,2 milljarðar króna af rekstrinum. Rekstrarhagnaður Orkuveitu Reykjavíkur fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, EBITDA, á fyrsta ársfjórðungi 2009 var 3,3 milljarðar króna. Eiginfjárhlutfall fyrirtækisins í lok mars var 19,0% en var 18,6% í árslok 2008. Lausafjárstaða Orkuveitu Reykjavíkur er góð. Vaxandi tekjur fyrirtækisins í erlendri mynt gera því kleift að standa undir greiðslum af erlendum lántökum þrátt fyrir miklar gengissveiflur. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla. Helstu niðurstöður tímabilsins 1.1. til 31.3. 2009 Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur var með 1.812 milljóna króna hagnaði fyrstu þrjá mánuði ársins 2009 samanborið við 17.243 milljóna króna halla fyrir sama tímabil árið áður. Rekstrartekjur tímabilsins námu 6.541 milljón króna en voru 6.079 milljónir króna fyrir sama tímabil árið áður. Hagnaður fyrirtækisins fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, EBITDA, var 3.335 milljónir króna samanborið við 3.400 milljónir króna á sama tímabili árið áður. Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 703 milljónir króna á tímabilinu, en voru neikvæðir um 22.729 milljónir króna á sama tímabili árið 2008. Heildareignir þann 31. mars 2009 voru 262.559 milljónir króna en voru 259.373 milljónir króna 31. desember 2008. Eigið fé þann 31. mars 2009 var 49.971 milljón króna en var 48.359 milljónir króna 31. desember 2008. Heildarskuldir fyrirtækisins þann 31. mars 2009 voru 212.588 milljónir króna samanborið við 211.015 milljónir króna í árslok 2008. Eiginfjárhlutfall var 19,0% þann 31. mars 2009 en var 18,6% í árslok 2008. Ýmis mál Alþingi samþykkti á vorþingi 2008 breytingar á ýmsum lögum á orkusviði með gildistöku 1. júlí 2009. Gildistökunni var síðan frestað til 1. janúar 2010. Þessar breytingar fela það meðal annars í sér að skipta þarf fyrirtækinu upp þannig að sérleyfisstarfsemi og samkeppnisstarfsemi séu reknar í aðskildum fyrirtækjum. Hafinn er undirbúningur að þessari skiptingu. Horfur Þrátt fyrir umrót á íslenskum og erlendum fjármálamörkuðum er rekstur Orkuveitu Reykjavíkur traustur og lausafjárstaða góð. Áfram er unnið að stækkun Hellisheiðarvirkjunar á árinu 2009 og er áformað að taka síðasta áfanga raforkuframleiðslu hennar í notkun á fyrsta ársfjórðungi 2011. Uppbygging annarra virkjana mun taka mið af aðgengi fyrirtækisins að lánsfé til fjárfestinga og þeim lánskjörum sem í boði verða. Vegna óvissu í íslensku efnahagslífi er dregið úr fjárfestingum í fjárhagsáætlun Orkuveitu Reykjavíkur fyrir árið 2009 og gripið hefur verið til víðtækra aðhaldsaðgerða í rekstri fyrirtækisins bæði hvað varðar launagreiðslur og annan rekstrarkostnað. Nánari upplýsingar veitir Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, í síma 516-6000. Orkuveita Reykjavíkur - árshlutauppgjör Allar tölur eru í milljónum kr. Rekstrarreikningur og 2009 2008 yfirlit um heildarafkomu 1.1-31.3. 1.1-31.3. Rekstrartekjur .............................. 6.541 6.079 Rekstrargjöld ................................ (3.206) (2.679) Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) 3.335 3.400 Afskriftir ....................................... (2.374) (1.632) Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) 703 (22.729) Áhrif hlutdeildarfélaga .................... 19 42 Hagnaður (tap) fyrir skatta 1.684 (20.919) Tekjuskattur ................................. 129 3.676 Hagnaður (tap) tímabilsins 1.812 (17.243) Skipting hagnaðar (taps) Eigendur móðurfyrirtækisins ........... 1.806 (17.220) Hlutdeild minnihluta ....................... 7 (23) Hagnaður (tap) tímabilsins 1.812 (17.243) Handbært fé frá rekstri .................. 425 443 Efnahagsreikningur 31.3.2009 31.12.2008 Fastafjármunir .............................. 242.946 252.618 Veltufjármunir ............................... 19.613 6.755 Eignir 262.559 259.373 Eigið fé ......................................... 49.971 48.359 Langtímaskuldir og skuldbindingar .. 194.810 196.589 Skammtímaskuldir ........................ 17.778 14.425 Eigið fé og skuldir 262.559 259.373 Kennitölur Veltufjárhlutfall 1,10 0,47 .......................... Eiginfjárhlutfall 19,0% 18,6% ........................... |
|||
|