|
|||
2012-01-19 17:45:13 CET 2012-01-19 17:46:14 CET REGULATED INFORMATION Landsvaki - FyrirtækjafréttirNafna- og reglubreyting Markaðsbréfa langraStjórn Landsvaka hf. sem rekur verðbréfasjóðinn Markaðsbréf löng (ISIN: IS0000006278, auðkenni: LBR MARKB4) hefur tekið ákvörðun um nafna- og reglubreytingu sjóðsins. Fjármálaeftirlitið hefur staðfest breytingarnar. Í breytingunum felst eftirfarandi: -- Nafni sjóðsins er breytt úr Markaðsbréf löng í Markaðsbréf. -- Lagatilvísanir eru uppfærðar með hliðsjón af nýjum lögum um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði nr. 128/2011. -- Meðallíftími er nú ekki takmarkaður við tiltekinn árafjölda. -- Gerðar eru breytingar á ákvæði um þóknun þannig að nú er tilgreindur beinn útlagður kostnaður vegna rekstrar sjóðsins sem ekki er innifalinn í umsýsluþóknun félagsins. Um er að ræða kostnað vegna Kauphallar, fjármálakerfa annarra en eignastýringarkerfis, áskriftar að verðbréfavísitölum, hugbúnaðar, lögfræðikostnaðar og kostnaðar við prentun útboðslýsinga og ársreikninga. -- Breytingar eru gerðar á fjárfestingarstefnu þannig að áhersla er aukin á eignir aðrar en ríkisskuldabréf og heimildir hvað varðar innlán eru auknar. Fjárfestingarstefna sjóðsins er nú: -- Skuldabréf, peningamarkaðsgerningar og aðrar kröfur með ábyrgð íslenska ríkisins, 20-80%. -- Skuldabréf og peningamarkaðsgerningar með ábyrgð íslenskra sveitarfélaga, 20-60%. -- Skuldabréf og peningamarkaðsgerningar með ábyrgð fjármálafyrirtækja, 0-40%. -- Skuldabréf og peningamarkaðsgerningar með ábyrgð annarra fyrirtækja, 0-20%. -- Innlán, 0- 60%. -- Afleiður vegna stöðutöku, 0-10%. Breytingarnar taka gildi þann 14. febrúar næstkomandi. Frekari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Landsvaka hf. Ari Skúlason í síma 410-7406. |
|||
|