|
|||
2013-12-16 12:20:43 CET 2013-12-16 12:21:44 CET REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirSterkara lánshæfi Orkuveitunnar að mati Moody‘sReykjavík, 2013-12-16 12:20 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Staðfesta stjórnenda Orkuveitu Reykjavíkur við að framfylgja Planinu, sem fyrirtækið hefur starfað eftir frá 2011, er helsta ástæða þess að matsfyrirtækið Moody‘s hefur breytt horfum í lánshæfismati sínu á Orkuveitunni úr neikvæðum í stöðugar. Orkuveita Reykjavíkur er áfram með einkunnina B1. Í rökstuðningi fyrir einkunnagjöfinni segir Moody‘s að bætt aðgengi Orkuveitunnar að lausafé og stöðugt batnandi fjárhagsstaða síðustu ár valdi batnandi mati. „Einstök staðfesta stjórnenda hefur leitt til þess að árangur í rekstrinum er umfram markmið í þeim efnum sem stjórnendur hafa áhrif á, svo sem rekstrarkostnaði og fjárfestingum,“ segir í viðhengdri fréttatilkynningu. Í henni er einnig rifjað upp að sala eigna hafi verið sá þáttur Plansins, sem erfiðast kynni að vera að láta standast. Nú séu þau tíðindi orðin að tekjur af sölu eigna nemi 7,4 milljörðum króna frá árinu 2011, sem sé nálægt markmiðinu um 8,1 milljarð. Þess má geta að nú er til staðfestingar hjá eigendum Orkuveitunnar sala á eignarhlut fyrirtækisins í HS Veitum fyrir um 1,5 milljarða króna. Moody‘s getur þess í tilkynningu fyrirtækisins að fyrirtækið telji að hinn lögbundni aðskilnaður samkeppni- og sérleyfisstarfsemi Orkuveitunnar, sem verður um áramótin, muni ekki auka áhættu í rekstri. |
|||
|