2014-01-22 18:30:00 CET

2014-01-22 18:30:44 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf. : Flokkar sértryggðra skuldabréfa stækkaðir


Íslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á útistandandi flokkum óverðtryggðra
sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á NASDAQ OMX Iceland.  ISLA CB 15 var
stækkaður um 620.000.000  kr. á ávöxtunarkröfunni 6,50% en ISLA CB 16 um
650.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 6,51%.

Heildarstærð ISLA CB 15 útgáfunnar er nú orðin 3,14  ma. kr. og ISLA CB 16 er
orðin 2,35  ma. kr. Alls hefur Íslandsbanki gefið út fimm flokka sértryggðra
skuldabréfa samtals að upphæð 24,59 ma. kr. frá fyrstu útgáfu bankans á slíkum
bréfum í desember 2011.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fagfjárfesta.  Heildareftirspurnin í útboðinu
var 1,37 ma. kr., en 92% tilboða var tekið. Stefnt er á að bréfin verði tekin
til viðskipta í NASDAQ OMX Iceland þann 29. janúar næstkomandi. Viðskiptavakt
fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréf Íslandsbanka er á vegum MP banka.

Bréfin eru gefin út í samræmi við lög nr. 11 frá 2008 um sértryggð skuldabréf
þar sem strangar kröfur eru gerðar til útgefenda. Tryggingasafnið að baki
skuldabréfunum skal standast sérstök vikuleg álagspróf með tilliti til vaxta og
gengis gjaldmiðla. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sérstakt eftirlit með útgáfunum,
sem einnig tilnefnir sjálfstæðan skoðunarmann til að sinna eftirliti. Skýrslur
um tryggingasafnið að baki sértryggðu skuldabréfunum eru gefnar út
ársfjórðungslega og má finna á vef Íslandsbanka.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187 / 844 3187.
  * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í
    síma 440 3925.


[HUG#1756476]