2012-05-24 13:25:43 CEST

2012-05-24 13:26:44 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar


Reykjavíkurborg var með skuldabréfaútboð í flokkum RVK 09 1 og RVK 19 1 þann
23. maí 2012. 

Alls bárust tilboð í RVK 09 1 að nafnvirði ISK 850.000.000 á bilinu 3,44% -
3,60%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 200.000.000 á
ávöxtunarkröfunni 3,45%. Útistandandi fyrir voru ISK 15.345.000.000.
Heildarstærð flokksins er nú ISK 15.545.000.000. 

Alls bárust tilboð í RVK 19 1 að nafnvirði ISK 645.000.000 á bilinu 1,90% -
3,00%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 345.000.000 á
ávöxtunarkröfunni 2,00%. Samhliða gefur Reykjavíkurborg skuldabréf að nafnvirði
ISK 240.000.000 vegna viðskiptavaktar.  Útistandandi fyrir voru ISK 0.
Heildarstærð flokksins er nú ISK 585.000.000. 





Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321
Netfang: bbs@rvk.is