2012-05-24 16:35:03 CEST

2012-05-24 16:36:04 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sveitarfélagið Álftanes - Fyrirtækjafréttir

Tillaga um sameiningu Garðabæjar og Sveitarfélagsins Álftaness lögð fyrir íbúa


Tillaga um sameiningu Garðabæjar og Sveitarfélagsins Álftaness verður í haust
lögð fyrir íbúa sveitarfélaganna tveggja í atkvæðagreiðslu. 

Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna samþykkti samhljóða á fundi sínum
fyrr í dag bókun þar sem fram kemur það álit nefndarinnar að fram eigi að fara
atkvæðagreiðsla meðal íbúa sveitarfélaganna um sameiningu. Álit nefndarinnar
ásamt greinargerð verður send bæjarstjórnum sveitarfélaganna tveggja sem er þar
með skylt að hafa um það tvær umræður í bæjarstjórn án atkvæðagreiðslu, skv. 2.
mgr. 119. gr. sveitarstjórnarlaga. Að lokinni umræðu sveitarstjórna ber síðan
að halda atkvæðagreiðslu meðal íbúa sveitarfélaganna um sameininguna, sbr. 3.
mgr. sömu greinar. 

Bæjarstjórnirnar þurfa sameiginlega að ákveða hvenær atkvæðagreiðsla um
sameiningu sveitarfélaganna fer fram. Kjósa skal sama dag í báðum
sveitarfélögunum. Fram kemur í sveitarstjórnarlögum að kynna verði íbúum
sveitarfélaganna tillöguna ásamt forsendum hennar með a.m.k. tveggja mánaða
fyrirvara og er því gert ráð fyrir að til atkvæðagreiðslu komi í haust. 

Samstarfsnefndin um sameiningu sveitarfélaganna var sett á laggirnar á árinu
2010 eftir að bæjarstjórn Garðabæjar barst erindi frá sveitarstjórn
Sveitarfélagsins Álftaness þar sem farið var fram á viðræður um sameiningu á
grundvelli frjálsrar sameiningar. Nefndin hefur haldið 16 fundi, þar af tvo með
innanríkisráðherra og nokkra með fulltrúum í fjárhaldsstjórn Sveitarfélagsins
Álftaness. 

Ráðgjafi nefndarinnar er Garðar Jónsson, stjórnunar- og rekstrarráðgjafi hjá
R3-Ráðgjöf. Garðar er fyrrverandi bæjarstjóri Hafnar í Hornafirði og hefur
einnig  starfað að sveitarstjórnarmálum á vettvangi ráðuneyta. 



Garðabæ, 24. maí 2012

Nánari upplýsingar veita:

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar í síma 820 8541.
Pálmi Þór Másson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins, Álftaness í síma 898 8773.