2015-09-14 11:23:50 CEST

2015-09-14 11:24:51 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.


Í 37. viku 2015 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 639.303 eigin hluti fyrir
13,4 m.kr. eins og hér segir: 

Dagsetnin  Tími      Keyptir    Viðskiptave   Kaupverð    Hlutir í eigu TM eftir
g                    hlutir          rð                         viðskipti       
--------------------------------------------------------------------------------
11.9.2015  09:56     24.000        20,95      502.800             24.000        
--------------------------------------------------------------------------------
11.9.2015  10:05     615.303       20,95     12.890.598          639.303        
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals              639.303                 13.393.398                         
--------------------------------------------------------------------------------



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. september 2015, sbr. og tilkynningu til
Kauphallar þann dag. 

TM hefur nú keypt samtals 639.303 hluti í félaginu sem samsvarar 2,1% af þeim
eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna
keyptu hluta nemur samtals 13,4 milljónum króna. TM á nú samtals 0,1% af
heildarhlutafé félagsins. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 31.000.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en
31. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.
Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og
II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og
markaðssvik. 



Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is