2011-04-28 17:12:11 CEST

2011-04-28 17:13:11 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Stykkishólmsbær - Ársreikningur

Ársreikningur Stykkishólmsbæjar 2010


Í dag 28. apríl 2011 var ársreikningur Stykkishólmbæjar 2010 tekinn til fyrri
umræðu. Eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, skal fjalla um ársreikninginn á
tveimur fundum í sveitarstjórn. Seinni umræða verður 19. maí n.k. 

Í reglugerð nr. 944/2000, um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, sem tók
gildi 1. janúar 2001, eru ákvæði um reikningsskil sveitarfélaga. Þar er gert
ráð fyrir að sveitarfélög hagi bókhaldi sínu og reikningsskilum í samræmi við
ákvæði laga um bókhald nr. 145/1994 og ársreikninga nr. 144/1994 að svo miklu
leyti sem sveitarstjórnarlög mæla ekki fyrir á annan veg eða reglugerðir settar
á grundvelli þeirra. Ársreikningar sveitarfélaga skulu byggðir á almennum
reikningsskilaaðferðum. 

Ársreikningur Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2010 byggir á sömu
reikningsskilaaðferðum og árið áður í samræmi við framangreind lög og reglur. 



Sjá lykiltölur í viðhengi.



Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 748,3 millj. kr. samkvæmt
samanteknum ársreikningi fyrir A- bæjarsjóð og B- hluta stofnanir og fyrirtæki,
en þar af námu rekstrartekjur A-hluta þ.e. bæjarsjóðs 687,3 millj. kr. 

Rekstrargjöld A og B hluta námu 821,7 millj. Þar af námu rekstrargjöld A-hluta
bæjarsjóðs 758,5 millj. að meðtöldum hækkunum vegna lífeyrisskuldbindinga
starfsfólks. Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs var neikvæð um 71,2 millj. samkvæmt
ársreikningi en neikvæð um 73,5 millj. kr. í samanteknum ársreikningi A og B
hluta. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2010 nam, eftir að
lífeyrisskuldbindingar höfðu verið dregnar frá, 882,5 millj. kr. samkvæmt
efnahagsreikningi, en þar af nam eigið fé bæjarsjóðs 1.051,3 millj. kr. 

Rekstarafkoma samantekins ársreiknings A og B hluta er neikvæð um 73,5 millj.
kr. Meginátæður eru fyrir þessu eru: 

 .     Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs A-hluti var neikvæð um 71,2 millj. Helstu
ástæður þessarar rekstrarniðurstöðu má rekja til hækkunar launakostnaðar miðað
við fjárhagsáætlun. Einnig urðu tekjur bæjarsjóðs umtalsvert minni miðað við
fjárhagsáætlun. Tekjur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga hafa dregist mikið saman
eftir efnahagshrunið haustið 2008. 

Það sem er jákvætt við rekstur bæjarsjóðs A og B hluta er að Hafnarsjóður var
rekin með 6,5 millj. kr. hagnaði, sem er mikill viðsnúningur miðað við tap s.l.
ár. Auk þess var 0,6 millj.kr. hagnaður Fráveitu á árinu, en það var 27,1
milljón kr. tap á henni á árinu 2009. 

Fjárfestingar voru 45,8 milljónir króna og vegur fjárfesting í Grunnskóla
viðbygging og eldhúsaðstaða í Íþróttamiðstöð þyngst. 

Álagningarhlutfall útsvars var 13,28%. Álagningarhlutfall fasteignaskatts var
0,43% á íbúðarhúsnæði. 

Álagningarhlutfall á aðrar fasteignir var 1,65%. Ársreikningurinn í heild sinni
verður birtur á heimasíðu Stykkishólmbæjar. 





Nánari upplýsingar veitir: Þór Örn Jónsson, bæjarritari, í síma 433-8100