|
|||
2009-02-09 10:55:08 CET 2009-02-09 10:56:02 CET REGULATED INFORMATION Hf. Eimskipafélag Íslands - Fyrirtækjafréttir- Eimskip hættir rekstri á frystigeymslum í HollandiEimskip mun hætta rekstri á frystigeymslufyrirtækinu Daalimpex í Hollandi. Samningar um sölu á fyrirtækinu voru á lokastigi en snuðra hljóp á þráðinn á síðustu metrunum og gekk því salan ekki eftir. Þetta þýðir að fyrirtækið verður tekið til gjaldþrotaskipta í ljósi þess að Eimskip sér ekki ávinning í því að styðja áfram við félagið fjárhagslega. Mun þessi niðurstaða hafa óveruleg áhrif á viðskiptavini Eimskip og mun félagið bjóða áfram fjölþætta þjónustu við sjávarútvegsfyrirtæki í gegnum samstarfsaðila í Hollandi. Fjárhagsleg áhrif á Eimskip nú verða óveruleg í ljósi þess að félagið hafði að fullu afskrifað þessa starfsemi á fjórða ársfjórðungi reikningsársins 2008. |
|||
|