2010-07-30 13:31:12 CEST

2010-07-30 13:32:12 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsvirkjun - Fyrirtækjafréttir

Moody‘s lækkar lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar


Í dag breytti alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's Investor Service horfum fyrir
lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar úr stöðugum í neikvæðar.   Lánshæfiseinkunn
Landsvirkjunar hjá Moody's er nú Baa3 (negative outlook) og er hún í
fjárfestingaflokki þrátt fyrir þessa breytingu á horfum.  Fram kemur í
fréttatilkynningu Moody's að breytingin endurspeglar samskonar breytingu sem
fyrirtækið gerði á lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins.  Að mati Landsvirkjunar
hefur breytingin engin áhrif á stöðu fyrirtækisins almennt né útistandandi
skuldabréfaflokka.