2011-04-29 13:45:19 CEST

2011-04-29 13:46:19 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði verðtryggðra og óverðtryggðra ríkisbréfa RIKS 21 0414 og RIKB 31 0124


Útboð á verðtryggðum og óverðtryggðum flokkum ríkisbréfa, RIKS 21 0414 og RIKB
31 0124 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig
háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta
ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 


Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKS 21 0414:
Alls bárust 28 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.955 m.kr. að nafnverði. 24
tilboðum var tekið fyrir 5.605 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 109,48 (2,70%
ávöxtunarkröfu). 

RIKB 31 0124:
Alls bárust 24 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.975 m.kr. að nafnverði. 17
tilboðum var tekið fyrir 6.325 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 93,99 (7,07%
ávöxtunarkröfu). 



Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 3. maí.
Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í
hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er
4. maí 2011.