2017-03-15 15:08:43 CET

2017-03-15 15:08:43 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kvika banki hf. - Niðurstöður hluthafafundar

Kvika banki hf.: Niðurstöður aðalfundar Kviku banka hf.


Aðalfundur  Kviku banka hf. var haldinn miðvikudaginn 15. mars 2017 á skrifstofu
félagsins í Reykjavík.

Helstu niðurstöður fundarins voru eftirfarandi:

 1. Ársreikningur vegna ársins 2016 var samþykktur eins og hann var lagður fram.
    Hagnaður Kviku árið 2016 nam 1.928 milljónum króna og arðsemi eiginfjár var
    34,7%. Samþykkt var að greiða arð af hlutabréfum í B-flokki á árinu 2017
    vegna ársins 2016 í samræmi við samþykktir félagsins. Ennfremur var samþykkt
    að enginn arður yrði greiddur af hlutabréfum í A-flokki.

 2. Samþykktar voru breytingar á samþykktum félagsins.

      Meðal  breytinga  sem  samþykktar  voru  er  að tekin var upp í samþykktir
stefna  bankans  um  stjórnarkjör  í  samræmi  við  leiðbeinandi tilmæli FME nr.
1/2016 um  innri stjórnarhætti  fjármálafyrirtækja og  4. mgr. 52. gr.  laga nr.
161/2002 um fjármálafyrirtæki.

      Þá var einnig tekið upp í samþykktir að íslenskur texti þeirra skuli ganga
framar enskum texta sé misræmi þar á milli.

      Einnig  var  samþykkt  að  veita  stjórn  heimild  til  hækkunar á hlutafé
félagsins  í  A-flokki  um  allt  að  kr.  200.000.000, með áskrift nýrra hluta.
Heimildin er háð ákveðnum skilyrðum sem koma fram í samþykktum og rennur út þann
15. mars 2022.

 3. Stjórnarkjör fór fram. Í aðalstjórn félagsins voru kjörin:

               - Þorsteinn Pálsson

               - Jónas Hagan Guðmundsson

               - Inga Björg Hjaltadóttir

               - Hrönn Sveinsdóttir

               - Guðmundur Þórðarson

            Til setu í varastjórn félagsins voru kjörin:

               - Kristín Guðmundsdóttir

               - Pétur Guðmundarson

 4. Á fundinum fóru einnig fram hefðbundin aðalfundarstörf eins og kosning
    endurskoðenda, samþykkt starfskjarastefnu, ákvörðun þóknunar til
    stjórnarmanna og samantekt stjórnar um hlutafjáreign og samstæðutengsl.





[]