|
|||
2011-08-29 17:26:12 CEST 2011-08-29 17:27:13 CEST REGULATED INFORMATION RARIK ohf. - ÁrsreikningurÁrshlutareikningur RARIK fyrstu sex mánuði ársins 2011Árshlutareikningur RARIK ohf 1. janúar til 30. júní 2011 var samþykktur af stjórn þann 29. ágúst. Rekstarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á fyrri hluta ársins 2011 var 905 milljónir króna. Rekstrarafkoman var betri en á fyrri hluta ársins 2010 og hækkuðu rekstrartekjur um rúmlega 6,6% frá fyrra ári, en rekstrargjöld með afskriftum um tæplega 4,9% og var regluleg starfsemi fyrirtækisins í samræmi við áætlanir. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 981 milljón króna á tímabilinu en voru á sama tímabili árið áður jákvæðir um 248 milljónir króna. Þessi breyting stafar fyrst og fremst af veikingu krónunnar og verðbólgu sem var meiri en gert var ráð fyrir í áætlunum. Áhrif hlutdeildarfélags á rekstur voru neikvæð um 30 milljónir króna. Samkvæmt yfirliti um heildarafkomu var tap á tímabilinu 91 milljón króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 1.532 milljónir króna eða um 31% af veltu tímabilsins, samanborið við 1.356 milljónir eða 29% af veltu á sama tímabili árið áður. Hreint veltufé frá rekstri var 1.531 milljón króna samanborið við 1.571 milljón króna á sama tímabili árið 2010. Samkvæmt efnahagsreikningi 30. júní 2011 voru heildareignir RARIK 36.604 milljónir króna og heildarskuldir námu 18.381 milljónum króna. Eigið fé var 18.223 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 49,8%. Árshlutareikningur RARIK ohf er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. Horfur Horfur í rekstri RARIK á árinu 2011 eru góðar að undanskildum fjármagnsliðum. Gert er ráð fyrir að afkoma ársins fyrir fjármagnsliði verði í samræmi við áætlanir, en heildarafkoma ársins ræðst hins vegar að verulegu leyti af þróun á gengi krónunnar og almennu ástandi efnahagsmála. Í ljósi þess að verðbólguþróun á fyrri hluta ársins og verðbólguspá næstu mánaða er hærri en gert var ráð fyrir í áætlunum, má búast við að tap verði á fyrirtækinu á árinu. Helstu stærðir samstæðureiknings eru sýndar í meðfylgjandi viðhengi |
|||
|