|
|||
2009-11-30 10:55:00 CET 2009-12-07 11:19:30 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í sölu íbúðabréfa og ríkisbréfaSala á íbúðabréfum og ríkisbréfum fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 10:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Í boði voru eftirfarandi flokkar að nafnverði: Flokkar Nafnverð HFF150224 2,6 ma.kr. RIKB 13 0517 2,2 ma.kr. RIKB 19 0226 0,6 ma.kr. Helstu niðurstöður voru þessar: HFF150224: Alls bárust tilboð að fjárhæð 4.360 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 2.558 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,70 (3,83% ávöxtunarkrafa). RIKB 13 0517 Alls bárust tilboð að fjárhæð 1.900 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 1.100 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,905 (7,60% ávöxtunarkrafa). RIKB 19 0226 Alls bárust tilboð að fjárhæð 3.400 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 568 m.kr. að nafnverði á verðinu 104,775 (7,99% ávöxtunarkrafa). |
|||
|