|
|||
![]() |
|||
2009-05-15 10:52:35 CEST 2009-05-15 10:53:49 CEST REGULATED INFORMATION Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - FyrirtækjafréttirStraumur selur dótturfyrirtæki sitt í Finnlandi15. maí 2009 Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. (Straumur) hefur selt finnska bankann eQ Bank. Söluverðið nemur ríflega 37 milljónum evra. Kaupandinn er Nordnet Group AB sem er sænskt eignastýringarfyrirtæki, skráð í kauphöllinni í Stokkhólmi. Salan er háð samþykki fjármálaeftirlita í Finnlandi og Svíþjóð. Viðskiptin eiga sér stað að undangengnu ríflega tveggja mánaða uppboðsferli sem hafði það að markmiði að hámarka söluandvirði eignarinnar. Lögð var áhersla á að tryggja gagnsæi og jafnfræði meðal bjóðenda og var hæsta tilboði tekið. HLP Corporate Finance, finnskt ráðgjafafyrirtæki, hafði umsjón með söluferlinu fyrir Straum en Roschier veitti lögfræðiráðgjöf. Nánari upplýsingar veitir; Georg Andersen - Forstöðumaður Samskiptasviðs Sími: 585 6707 georg@straumur.com |
|||
|