2024-06-14 20:30:00 CEST

2024-06-14 20:30:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íslandsbanki hf. - Viðskipti félags með eigin bréf

Íslandsbanki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun - lok umferðar endurkaupa


Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 22. mars 2024 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum að fjárhæð 5 milljarðar króna sem upphaflega var tilkynnt um þann 17. febrúar 2023.

Í viku 24 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 1.014.964 eigin hluti að kaupverði alls kr. 97.511.394 eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr)Eigin hlutir eftir viðskipti
10.6.202410:02:3612.65996,00 1.215.264 76.287.832
10.6.202414:39:114.30596,00 413.280 76.292.137
11.6.202410:56:49249.50096,00 23.952.000 76.541.637
12.6.202411:08:36249.50096,10 23.976.950 76.791.137
13.6.202409:50:3770.00096,80 6.776.000 76.861.137
13.6.202409:59:32179.50096,80 17.375.600 77.040.637
14.6.202410:59:1260.86395,40 5.806.330 77.101.500
14.6.202411:12:25188.63795,40 17.995.970 77.290.137

Samtals vikan1.014.964
97.511.394

Fyrir framangreind viðskipti í viku 24 átti bankinn 76.275.173 hluti, sem nemur 3,81% af útgefnum hlutum.

Þessari umferð endurkaupa, sem tilkynnt var um í kauphöll þann 22. mars 2024, er nú lokið. Samkvæmt framangreindri tilkynningu var áætlað að kaupa allt að 10 milljón hluti sem jafngildir 0,50% af útgefnu hlutafé bankans í umferðinni, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 1.000.000.000.

Í þessari umferð endurkaupa keypti bankinn 9.992.504 hluti, sem nemur 0,50% af útgefnum hlutum fyrir samtals kr. 994.159.596 og er því framangreindu hlutfalli af útgefnum hlutum náð í þessari umferð.

Frá upphafi endurkaupa í febrúar 2023 hefur bankinn keypt samtals 77.290.137 eigin hluti eða sem nemur 3,86% af útgefnum hlutum í bankanum. Með viðskiptum í viku 24 lýkur 5 milljarða króna endurkaupaáætlun sem upphaflega var tilkynnt um þann 17. febrúar 2023. Líkt og tilkynnt var um samhliða ársuppgjöri bankans hefur bankinn í hyggju að ráðast í útgreiðslu á umfram eigin fé sem nemur 10 milljörðum króna. Hafa þegar verið keyptir til baka hlutir fyrir 3.173.369.193 milljarða króna með öfugu útboðsfyrirkomulagi sem tilkynnt var um þann 6. maí og 5. júní sl.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglugerðar nr. 320/2022 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.

Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi endurkaupaáætlunina sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.