2024-06-14 20:47:02 CEST

2024-06-14 20:47:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 24 - Lok endurkaupaáætlunar


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 1. maí 2024 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 2. maí 2024. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 24. viku 2024 keypti Reitir fasteignafélag hf. 810.146 eigin hluti að kaupverði 67.632.337 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
10/6/2415:11100.00082,758.275.0009.839.854
11/6/2410:06100.00082,008.200.0009.939.854
11/6/2411:00100.00082,508.250.00010.039.854
11/6/2415:00100.00083,508.350.00010.139.854
12/6/2411:09100.00083,008.300.00010.239.854
12/6/2414:42100.00085,008.500.00010.339.854
12/6/2415:1710.14684,50857.33710.350.000
13/6/2412:0916.50085,001.402.50010.366.500
13/6/2413:2583.50085,007.097.50010.450.000
14/6/2411:00100.00084,008.400.00010.550.000
Samtals 810.146 67.632.33710.550.000


Endurkaupaáætlun Reita fasteignafélags hf., sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 1. maí sl. er nú lokið. Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins nema allt að 5.000.000 hlutum og heildarkaupverð mátti ekki nema hærri fjárhæð en 425 milljónum króna.

Reitir hafa nú keypt samtals 5.000.000 eigin hluti fyrir samtals 395.752.710 kr. í samræmi við endurkaupaáætlunina, og er því framangreindu marki um hámarks fjölda hluta sem keyptir verða náð. Athygli er vakin á því að villa slæddist í fyrri tilkynningu um kaupverð og er samtala heildarkaupverðs hér leiðrétt. 

Frá lokum fyrsta ársfjórðungs 2024, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 8.950.000 eigin hluti fyrir 703.726.883 kr.

Reitir eiga nú samtals 10.550.000 eigin hluti, eða um 1,48% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 701.000.000.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.