|
|||
2010-10-25 20:48:29 CEST 2010-10-25 20:49:43 CEST REGULATED INFORMATION Össur hf. - ÁrsreikningurUppgjör Össurar - þriðji ársfjórðungur 2010Fréttatilkynning frá Össuri hf. nr. 20/2010 Reykjavík, 25.október 2010 GÓÐUR ÁRANGUR Sala - Söluvöxtur á þriðja ársfjórðungi var 7% mælt í staðbundinni mynt. Salan nam alls 87 milljónum Bandaríkjadala samanborið við 84 milljón dala á þriðja ársfjórðungi í fyrra. Góð Söluaukning var á spelkum og stuðningsvörum eða um 12%, mælt í staðbundinni mynt. Sala á stoðtækjum jókst um 3%, mælt í staðbundinni mynt. Arðsemi - EBITDA framlegð nam 19 milljónum Bandaríkjadala eða 22% af sölu. Framlegð nam 54 milljónum dala eða 62% af sölu. Framlegð er áfram stöðug. Hagnaður á tímabilinu nam 4 milljónum Bandaríkjadala samanborið við 5 milljónir dala á sama tímabili í fyrra. Neikvæð gengisáhrif á fjármagnsliði höfðu töluverð áhrif á hagnað. Jón Sigurðsson, forstjóri:"Sala á spelkum og stuðningsvörum heldur áfram að vera góð og þá sérstaklega í Bandaríkjunum. Mikið af nýjum vörum hefur komið út á árinu og við erum ánægð með að nýjar spelkur og stuðningsvörur hafa jákvæð áhrif á söluvöxt á fjórðungnum. Meðal nýrra vara sem voru kynntar á fjórðungnum er PROPRIO FOOT sem er önnur varan í Bionic vörulínu Össurar. Bionic vörulínan hefur skapað spennu og eftirvæntingu á markaðnum og erum við staðföst í að þróa þessa vörulínu enn frekar." Helstu áfangar á fjórðungnum: * PROPRIO - Á fjórðungnum var gerviökklinn Proprio settur á markað. Proprio er önnur varan í Bionic vörulínunni sem er kynnt á markaðinum. Proprio er fyrsta vara sinnar tegundar og því þarf Össur að ryðja veginn og undirbúa markaðinn. Sala á Proprio á þriðja og fjórða ársfjórðungi þessa árs mun ekki hafa veruleg áhrif á heildarsölu félagsins. * Spelkur og stuðningsvörur - Söluvöxtur á spelkum og stuðningsvörum hefur verið yfir markaðsvexti. Jákvæð merki um vöxt í Bandaríkjunum staðfesta að aukin fjárfesting í sölukerfi í Bandaríkjunum er að skila sér. Nýjar spelkur og stuðningsvörur, eins og Miami Lumbar og Rebound Walker, hefur verið vel tekið og hafa jákvæð áhrif á vöxt. Áætlun - Stjórnendur gera ráð fyrir að söluaukning verði í takt við upprunalegu áætlun félagsins, sem gerir ráð fyrir 4-6% innri vexti á árinu, mælt í staðbundinni mynt. Nú er gert ráð fyrir 5-7% innri EBITDA vexti, mælt í staðbundinni mynt. Símafundur þriðjudaginn 26. október kl. 10:00 Á morgun þriðjudaginn 26. október, verður haldinn símafundur fyrir fjárfesta, hluthafa og aðra markaðsaðila þar sem farið verður yfir niðurstöður 3. ársfjórðungs 2010. Fundurinn hefst kl. 10:00 GMT / 12:00 CET / 6:00 EST. Á fundinum munu þeir Jón Sigurðsson, forstjóri, og Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á ensku og verður hægt að fylgast með honum á netinu á slóðinni www.ossur.com/investors Símanúmer til að taka þátt í fundinum eru: Evrópa: + 44 (0) 20 3043 2436 eða +46(0)8 505 598 53 Bandaríkin: +1 866 458 40 87 Ísland: 800 8660 Nánari upplýsingar: Jón Sigurðsson, forstjóri sími: 515-1300 Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri sími: 515-1300 Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill sími: 664-1044 Vinsamlega athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti uppgjörsins. Tilkynningu í fullri lengd á ensku er að finna áwww.ossur.com/investors [HUG#1455122] |
|||
|