|
|||
2014-06-03 15:43:36 CEST 2014-06-03 15:44:37 CEST REGULATED INFORMATION Nýherji hf. - FyrirtækjafréttirNýherji selur rekstur tækjaleigu félagsinsNýherji hf. hefur gengið frá sölu á starfsemi Tækjaleigu Nýherja til Sonik Tækni ehf., sem tekur yfir reksturinn þann 15. júní nk. Kaupverð er trúnaðarmál en salan hefur óveruleg áhrif á rekstrarniðurstöðu Nýherja á árinu. Tækjaleiga Nýherja hefur um árabil sérhæft sig í tækniþjónustu við hvers konar viðburði, t.a.m. tónleika, ráðstefnur, o.fl. Leigan hefur boðið upp á afar vönduð vörumerki, svo sem Yamaha og L-Acoustics. Nýherji mun áfram annast sölu á viðkomandi vörumerkjum og annast rekstur á miðlægum tölvubúnaði fyrir Sonik Tækni (streymiþjónusta, leigukerfi o.fl). „Nýherji hefur að undanförnu unnið að endurskilgreiningu á megináherslum félagsins sem fela í sér skarpari sýn á starfsemina. Salan á Tækjaleigunni til Sonik Tækni er í takt við nýjar áherslur Nýherja, sem er að efla þjónustu- og lausnaframboð í upplýsingatækni fyrir íslensk fyrirtæki. Við væntum þess að starfsemi Sonik Tækni muni vaxa og dafna á næstu misserum og hlökkum til góðs samstarfs í sameiginlegum verkefnum“ segir Finnur Oddsson forstjóri Nýherja. Nánari upplýsingar: Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja, í síma +354 862 0310. |
|||
|