|
|||
![]() |
|||
2015-04-16 17:31:14 CEST 2015-04-16 17:32:16 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLeiðrétting: Landsbankinn gefur út nýjan verðtryggðan flokk sértryggðra skuldabréfa, LBANK CBI 22 - Frétt birt 2015-04-16 17:07:51Leiðrétting: Það vantaði að taka fram um á hvaða ávöxtunarkröfu bréfin voru seld. Landsbankinn lauk í dag sölu á nýjum flokki sértryggðra skuldabréfa. Skuldabréfin eru verðtryggð með vísitölu neysluverðs og bera fasta 3,0% vexti til sjö ára. Bréfin voru seld á ávöxtunarkröfunni 3,25%. Fjárhæð útgáfunnar nemur 1.760 milljónum króna en þar af voru 1.700 milljónir króna seldar til fjárfesta á markaði. Mismunur verður nýttur vegna viðskiptavaktar með bréfin. Stefnt er að því að bréfin verði tekin til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 28. apríl 2015. Samið hefur verið við Straum fjárfestingabanka um viðskiptavakt með bréfin. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og Reglur nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. Nánari upplýsingar: Kolbrún Guðlaugsdóttir, pr@landsbankinn.is 410 4014 eða 862 3679 |
|||
|