|
|||
2015-04-16 18:08:21 CEST 2015-04-16 18:09:22 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirCORRECTION: Mánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs mars 2015Mánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs mars 2015 Hagnaður varð af rekstri Íbúðalánasjóðs á árinu 2014 Íbúðalánasjóður birti ársuppgjör sitt í mars. Nam hagnaður ársins 3,2 milljörðum króna. Á sama tíma varð mikil styrking á lánasafni sjóðsins sé litið til minnkandi vanskila og styrkingar tryggingastöðu útlána. Lausafjárstaða sjóðsins er sterk og hækkaði um 3,5 milljarða króna á árinu vegna sölu fullnustueigna. Vanskil heimila halda áfram að lækka Í lok mars 2015 voru 4,51% þeirra heimila sem eru með fasteignalán sín hjá Íbúðalánasjóði með lán sín í vanskilum. Sambærilegt hlutfall í lok árs 2014 var 5,49% og var sama hlutfall 7,23% í lok árs 2013. Hefur því heimilum í vanskilum fækkað um 17% frá áramótum. Þess má geta að sambærileg vanskilahlutföll lána til heimila hafa lægst farið rétt niður undir 2% á besta tíma í hagsveiflunni sé litið til síðustu 20 ára. Það er ánægjulegt að fylgjast með hag heimila styrkjast en nú eru 95,5% heimila með lán sín hjá sjóðnum með fasteignalán sín í skilum Sala eigna í eigu sjóðsins gengur vel Íbúðalánasjóður hefur selt 190 eignir frá áramótum. Sala eigna gengur vel og gera áætlanir sjóðsins ráð fyrir að selja ríflega 1.000 eignir á árinu 2015. Ítarlegri umfjöllun má lesa í meðfylgjandi mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs |
|||
|