2019-01-22 16:36:52 CET

2019-01-22 16:36:52 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Heimavellir hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Heimavellir hf.: Eignasala fyrir 6,2 milljarða árið 2018 og níu fjölbýlishús sett í sölu á Ásbrú.


Fréttatilkynning frá Heimavöllum hf
22. janúar 2019.

Eignasala fyrir 6,2 milljarða árið 2018 og níu fjölbýlishús sett í sölu á Ásbrú.


Eitt af forgangsverkefnum Heimavalla er endurskipulagning á eignasafni félagsins þar sem félagið hefur lagt áherslu á að selja stakar eignir og einingar sem falla ekki að stefnu félagsins eins og  kynnt var á markaði þann 19. nóvember 2018.

Endurskipulagning eignasafnsins gekk vel á árinu 2018 og seldi félagið 210 íbúðir fyrir samtals 6,2 milljarða króna, þar af var eignasala á fjórða ársfjórðungi 2,9 milljarðar króna. Heildareignasala félagsins á árunum 2018 til 2020 er ráðgerð um 17 milljarðar króna en á móti hyggst félagið bæta við sig nýjum hagkvæmum eignum.

Einn liður þessa verkefnis er endurskipulagning eignasafnsins á Ásbrú og hefur félagið ákveðið að selja níu fjölbýlishús á Ásbrú sem tilheyra svokölluðu 900 hverfi. Um er að ræða 122 íbúðir sem eru að meðaltali 155 fm að stærð og 32 stúdíóíbúðir sem eru ríflega 40 fm hver. Eftir sölu þessa eignasafns mun félagið eiga og reka 583 íbúðir á Ásbrú og er meðalstærð þeirra 98 fm.

Heimavellir hafa gert samkomulag við fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans um sölu þessa eignasafns sem veitir frekari upplýsingar um söluna í netfanginu söluferli@landsbankinn.is.


Frekari upplýsingar veitir:

Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri
896 0122 – gudbrandur@heimavellir.is