|
|||
2013-11-08 10:00:00 CET 2013-11-08 10:00:28 CET REGULATED INFORMATION FAST-1 slhf. - FyrirtækjafréttirTilkynning til Kauphallar Íslands frá FAST-1 slhf.FAST-1 slhf. tilkynnir að uppgötvast hafi þann 6. nóvember 2013 að ekki hafi verið staðið með fullnægjandi hætti að veðsetningu til tryggingar á þeim fasteignum sem getið er til um í skilmálum Útboðslýsingar vegna útgáfu skuldabréfaflokks með auðkenni FAST-1 12 1. Nánar tiltekið hafði annars vegar orðið dráttur á þinglýsingu tryggingabréfa og hins vegar hafði láðst að þinglýsa aðilaskiptum að áhvílandi tryggingarbréfum. Útgefandi hefur nú þegar brugðist við og gefið út fullnægjandi tryggingarskjöl sem móttekin hafa verið af sýslumannsembættinu til að fullnægja umræddum skilyrðum um sérstaka skuldbindingu samkvæmt skilmálum í Útboðslýsingu en sýslumannsembættið tekur sér nokkra daga til að skrá inn umrædd veðréttindi. Þá mun útgefandi tilkynna opinberlega þegar þinglýsingu framangreindra trygginga er lokið og skilmálum Útboðslýsingar hefur verið fullnægt. [HUG#1741728] |
|||
|