2012-03-29 17:33:02 CEST

2012-03-29 17:34:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Nýherji hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Breytingar í stjórnendahópi Nýherja hf.


Kristinn Þór Geirsson, aðstoðarforstjóri hefur ákveðið að láta af störfum hjá
Nýherja. Kristinn hóf störf hjá Nýherja í maíbyrjun árið 2010, þegar félagið
stóð í samningum við viðskiptabanka um fjárhagslega endurskipulagningu og hefur
jafnframt verið ábyrgur fyrir fjölmörgum verkefnum innan samstæðunnar. Kristinn
lætur af störfum í lok apríl. 

Þorvaldur Jacobsen, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra Tæknisviðs, tekur
við starfi framkvæmdastjóra Vörusviðs Nýherja. Þorvaldur hefur starfað hjá
Nýherjasamstæðunni frá 2002. Þorvaldur er rafmagnsverkfræðingur frá Háskóla
Íslands, með BS gráðu í tölvunarfræði frá sama skóla og meistaragráðu í
verkfræði frá University of Texas í Austin. 

Gunnar Zoëga hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Tæknisviðs Nýherja. Hann
hóf störf hjá TM Software árið 2003 og hefur síðan gegnt ýmsum störfum þar, hjá
Skyggni og síðan hjá Nýherja, nú síðast sem deildarstjóri Umsjár. Gunnar lauk
BS í viðskipta- og tölvunarfræði frá University of South Carolina og
kerfisfræði frá Háskólanum í Reykjavík. 

Nýherji hf. er leiðandi upplýsingatæknifélag og umboðsaðili fyrir fjölmörg
heimsþekkt vörumerki, svo sem IBM, Lenovo, Canon og Sony. Dótturfélög Nýherja
eru Applicon, TM Software og Dansupport. Hjá Nýherja starfa um 270 manns en hjá
allri samstæðunni hérlendis og erlendis eru um 550 starfsmenn.