|
|||
2012-08-31 19:32:47 CEST 2012-08-31 19:33:49 CEST SÄÄNNELTY TIETO Hampiðjan hf. - Interim information (is)Árshlutareikningur Hampiðjunnar fyrir fyrstu 6 mánuði 2012Allar fjárhæðir í evrum og samanburðartölur í sviga -- Rekstrartekjur jukust um 20% og voru 23,9 milljónir (20,0 milljónir). -- Hagnaður fyrir fjárliði (EBITDA) var 4,2 milljónir (3,4 milljónir). -- Hlutdeild í afkomu HB Granda var 158 þúsund til gjalda (1,4 milljónir til tekna). -- Hagnaður tímabilsins var 2,2 milljónir (2,6 milljónir). -- Heildareignir voru 80,8 milljónir (79,5 milljónir). -- Vaxtaberandi skuldir voru 24,5 milljónir (25,7 milljónir). -- Eiginfjárhlutfall var 59% (58%). Rekstur Rekstrartekjur samstæðunnar voru 23,9 milljónir og jukust um 20% frá fyrstu sex mánuðum fyrra árs. Rekstrarhagnaður var 14% af rekstrartekjum eða 3,3 milljónir en var 12,7% í fyrra eða 2,5 milljónir. Fjármunatekjur ásamt hlutdeild í tapi HB Granda, að frádregnum fjármagnsgjöldum, voru 622 þúsund til gjalda en voru 430 þúsund til tekna á fyrra ári. Hagnaður tímabilsins var 2,2 milljónir en var 2,6 milljónir sama tímabil fyrra árs. Efnahagur Heildareignir voru 80,8 milljónir í árslok. Eigið fé nam 47,4 milljónum, en af þeirri upphæð eru 5,6 milljónir hlutdeild minnihluta í eigin fé tveggja dótturfélaga (Swan Net Gundry á Írlandi og Fjarðanetum á Íslandi). Hlutfall eigin fjár, þegar hlutdeild minnihluta er meðtalin, var í árslok 59% af heildareignum samstæðunnar. Vaxtaberandi skuldir námu í árslok 24,5 milljónum og lækkuðu um 1,2 milljónir frá ársbyrjun. Jón Guðmann Pétursson, forstjóri: „Sala og afkoma Hampiðju samstæðunnar var mun betri fyrrihluta ársins en hún var á sama tíma í fyrra, ef frá eru talin umskipti í hlutdeildarafkomu frá HB Granda. Söluaukningin er tilkomin vegna aukinnar sölu ofurkaðla til olíuiðnaðar og aukningar í sölu veiðarfæra á okkar helstu mörkuðum, þ.e. Íslandi, Írlandi og í Danmörku. Þó svo verkefnastaðan sé víðast hvar ágæt er seinni hluti ársins yfirleitt lakari hjá okkur en fyrri hlutinn og útlit fyrir að sú verði einnig raunin á þessu ári.“ Árshlutareikningurinn er á heimasíðu Hampiðjunnar hf., www.hampidjan.is. |
|||
|