|
|||
2013-03-26 15:52:53 CET 2013-03-26 15:53:55 CET REGULATED INFORMATION Skipti hf. - FyrirtækjafréttirSátt við SamkeppniseftirlitSkipti hf. og Samkeppniseftirlitið hafa gert með sér sátt um að ljúka í einu lagi málum sem verið hafa til athugunar Samkeppniseftirlitsins og varða Símann. Sáttin hefur það að markmiði að tryggja jafnan aðgang að grunnkerfum fjarskipta á Íslandi. Elstu málin eiga rætur að rekja til ákvarðana sem teknar voru þegar Síminn var enn ríkisfyrirtæki. Skipti hf. eiga meðal annars Símann og Mílu. Viðræður hófust að frumkvæði Símans og kom Skipti fljótlega að viðræðunum. Þeim lyktaði með sátt um breytta verkaskiptingu, breyttar verklagsreglur og aðgerðir af ýmsu tagi sem gripið verður til innan Skiptasamstæðunnar sem ætlað er að auka samkeppni, jafnræði, gegnsæi og trúverðugleika á fjarskiptamarkaði. Liður í sáttinni er að Skipti fallast á að greiða 300 milljóna króna stjórnvaldssekt. Félögin láta jafnframt niður falla ágreiningsmál sem þau höfðu áður ákveðið að áfrýja til dómstóla. Skipti og dótturfélögin líta á sáttina sem kaflaskil og með henni er lýst yfir eindregnum vilja til að starfsemin sé í fullri sátt við umhverfið. Félögin munu starfa náið með Samkeppniseftirlitinu við að hrinda í framkvæmd þeim breytingum og aðgerðum sem sáttin kveður á um. Skipti munu tryggja fullan aðskilnað fjarskiptaneta samstæðunnar frá annarri starfsemi hennar auk þess sem mikilvægar heildsöluafurðir, sem áður voru í boði hjá Símanum, færast til Mílu. Slíkt fyrirkomulag er líkt því sem gerist í grannlöndum, til dæmis í Svíþjóð og Bretlandi. Samkeppnisréttaráætlun hefur þegar verið innleidd hjá Skiptum og dótturfélögum sem starfa á fjarskiptamarkaði. Einnig hefur verið innleitt viðamikið aðgangsstýringarkerfi sem tryggir að upplýsingar berist ekki milli heildsölu og smásölu. Stjórnsýsla og rekstur Mílu verða aðskilin móður- og systurfélögum og viðskiptastefna félagsins mótuð með sjálfstæðum hætti. Breytingar hjá Símanum eru þær helstar að enn frekar verður skerpt á skilum og verkferlum heildsölu annars vegar og smásölu hins vegar. Tryggt skal að heildsala Símans veiti keppinautum hliðstæða þjónustu og smásölu Símans og að allir þessir viðskiptavinir fái sömu upplýsingar á sama tíma um nýjar og fyrirhugaðar vörur og þjónustu. Nánari upplýsingar: Pétur Þorsteinn Óskarsson, s. 8636075. Eftirlitsnefnd verður skipuð um jafnan aðgang fjarskiptafyrirtækja að kerfum, tæknilausnum og þjónustu heildsölu Mílu og heildsölu Símans. |
|||
|