|
|||
![]() |
|||
2015-07-06 18:07:15 CEST 2015-07-06 18:08:16 CEST BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsREITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.Í 27. viku 2015 keypti Reitir fasteignafélag hf. 250.000 eigin hluti fyrir 16,65 milljónir kr. eins og hér segir: Dagsetnin Tími Keyptir Viðskipta-v Kaupverð Eigin hlutir eftir g hlutir erð viðskipti -------------------------------------------------------------------------------- 3.7.2015 09:44 250.000 66,6 16.650.000 500.000 -------------------------------------------------------------------------------- Samtals 250.000 16.650.000 -------------------------------------------------------------------------------- Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 19. júní 2015, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 18. júní 2015. Reitir hafa nú keypt samtals 500.000 hluti í félaginu sem samsvarar 1,47% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 32,65 milljónum króna. Reitir eiga nú samtals 0,06% af heildarhlutafé félagsins. Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 34.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 2.300 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en þann 29. febrúar 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005. |
|||
|