2012-11-02 19:52:03 CET

2012-11-02 19:53:05 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Eimskipafélag Íslands hf. - Fyrirtækjafréttir

Meira en fimmföld eftirspurn í almennu útboði


Í dag, 2. nóvember 2012, kl. 16:00 lauk almennu útboði með hlutabréf
Eimskipafélags Íslands hf., en  Straumur fjárfestingabanki hf. og Íslandsbanki
hf. eru ráðgjafar félagsins og seljenda. Útboðsgengið var fyrirfram ákveðið,
kr. 208 á hlut. Samtals bárust áskriftir fyrir yfir ellefu milljarða króna eða
sem nemur yfir fimmfaldri umframeftirspurn m.v. þann 5% hlut sem boðinn var til
sölu af Landsbanka Ísland hf., ALMC hf. og Samson eignarhaldsfélagi ehf. Í
ljósi mikillar umframeftirspurnar mun félagið, líkt og fram kom í
skráningarlýsingu þess, auka við framboðið og selja 6.000.000 eigin hluti, eða
sem nemur 3% af útgefnu hlutafé. Samtals eru því seldir 16.000.000 hlutir eða
sem nemur 8% af útgefnu hlutafé félagsins. 

Alls skráðu um 2.500 fjárfestar sig fyrir hlutum í almenna útboðinu. Sala á
hlutum í almennu útboði kemur til viðbótar við sölu á 20% hlut sem seldur var í
lokuðu útboði og lauk fimmtudaginn 26. október s.l. og 14% hlut sem
Lífeyrissjóður verzlunarmanna keypti af Landsbanka Íslands og sjóðum á vegum
The Yucaipa Companies áður en lokað útboð hófst. Samtals hefur því 42% hlutur í
félaginu skipt um hendur í tengslum við skráningu félagins á Aðalmarkað NASDAQ
OMX Iceland hf. Söluandvirði þessa 42% hluta er samtals yfir 17 milljarðar
króna. 

Úthlutun hlutabréfa í almenna útboðinu fer fram samkvæmt því sem fram kemur í
kafla 6.2.5 í verðbréfalýsingu Eimskipafélags Íslands hf., dags. 22. október
2012. Aðilum sem skráðu sig fyrir hlutabréfum verður tilkynnt um úthlutun með
tölvupósti fyrir kl. 16:00 mánudaginn 5. nóvember 2012. 



Gylfi Sigfússon, forstjóri

„Það er mér mikið ánægjuefni hversu vel fjárfestar hafa tekið félaginu, en
niðurstöður útboðsins gefa til kynna að fjöldi hluthafa í kjölfar skráningar
verði um þrjú þúsund sem þýðir að nú er félagið komið í þá dreifðu eignaraðild
sem ég vonaðist eftir. Fyrir hönd Eimskipafélags Íslands þakka ég nýjum
hluthöfum og starfsmönnum félagsins það traust sem þeir hafa sýnt félaginu og
hlakka til að eiga með þeim farsælt samstarf í framtíðinni.“