2017-02-06 10:17:35 CET

2017-02-06 10:17:35 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reykjavíkurborg - RVKN 35 1


Reykjavíkurborg hefur ákveðið í samræmi við útgáfuáætlun 2017 að efna til
útboðs í skuldabréfaflokknum RVKN 35 1 miðvikudaginn 8.febrúar. Reykjavíkurborg
stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 300 milljónir króna að markaðsvirði.
Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð
útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. 

Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð í skuldabréfaflokknum
bjóðast á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða
söluverð. 

Heildarstærð RVKN 35 1 fyrir þetta útboð nemur alls 3.480 m.kr. að nafnvirði.

Heimild til lántöku á árinu 2017 er 3.012 m.kr.

Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 13.febrúar 2017.

Arion banki, Íslandsbanki, Landsbanki og Kvika fjárfestingarbanki eru
umsjónaraðilar útboðsins og hafa einir rétt á tilboðsgerð. Tilboð skulu berast
fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 8. febrúar. 

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali:



Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321