|
|||
2012-06-20 18:10:21 CEST 2012-06-20 18:11:22 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtgáfa á RIKS 33 0321 í tengslum við gjaldeyrisútboðÍ dag 20. júní fór fram gjaldeyrisútboð hjá Seðlabanka Íslands þar sem bankinn bauðst til þess að kaupa evrur gegn afhendingu á ríkisbréfum í verðtryggða flokknum RIKS 33 0321. Aðgerðin sem er liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum mun draga úr árlegri endurfjármögnunarþörf ríkissjóðs. Samtals voru seld bréf í flokknum fyrir kr. 1.541.523.995 að nafnverði. Samþykkt gengi evru gangvart krónur var 245 í útboðinu. Þann 14. júní var tilkynnt um fast verð bréfanna sem er 104,498860 kr. með áföllnum vöxtum og verðbótum (e. dirty price) miðað við uppgjörsdag 22. júní 2012 (krafa 2,90%).[1] [1] Hreint verð (e. clean price) 101,50 |
|||
|