|
|||
2010-02-26 16:49:10 CET 2010-02-26 16:50:10 CET REGULATED INFORMATION Marel Food Systems hf. - HluthafafundirFramboð til stjórnar á aðalfundi félagsins 3. mars 2010Eftirtaldir aðilar gefa kost á sér til setu í stjórn Marel Food Systems hf. á aðalfundi félagsins, sem haldinn verður miðvikudaginn 3. mars næstkomandi kl. 15:00, í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9, Garðabæ: Arnar Þór Másson, Reykjavík Árni Oddur Þórðarson, Reykjavík Ásthildur Margrét Otharsdóttir, Reykjavík Friðrik Jóhannsson, Reykjavík Helgi Magnússon, Seltjarnarnes Lars Grundtvig, Árósum, Danmörku Margrét Jónsdóttir, Seltjarnarnes Theo Bruinsma, Oss, Hollandi Smári Rúnar Þorvaldsson, Hafnarfirði Frekari upplýsingar um framangreinda aðila eru nú aðgengilegar á upplýsingasíðu aðalfundar 2010 á heimasíðu félagsins: http://www.marel.com/agm. Framboðsfrestur er nú runninn út. Samkvæmt núgildandi samþykktum félagsins skal stjórn skipuð sex mönnum. Fyrir fundinum liggur tillaga um að breyta samþykktum félagsins þannig að fjöldi stjórnarmanna skuli vera 7-9. Verði sú tillaga samþykkt mun stjórn félagsins leggja til að aðalfundur kjósi níu stjórnarmenn, sem hefði í för með sér að framangreindir aðilar verði sjálfkjörnir í stjórn félagsins á komandi aðalfundi án sérstakrar atkvæðagreiðslu. |
|||
|