2013-05-03 13:37:09 CEST

2013-05-03 13:38:11 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Ísafjarðarbær - Ársreikningur

Meginniðurstöður ársreiknings Ísafjarðarbæjar 2012


Ársreikningur Ísafjarðarbæjar er gerður í samræmi við sveitarstjórnarlög, lög
um ársreikninga, reglugerð um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga og
auglýsingar stjórnvalda um reikningsskil sveitarfélaga. 

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 3.255 milljónum króna samkvæmt
samanteknum rekstrarreikningi fyrir A og B hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð
fyrir rekstrartekjum að fjárhæð 3.115 milljónum króna.  Rekstrartekjur A hluta
námu 2.828 milljónum króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum að
fjárhæð 2.723 milljónum króna. 

Álagningarhlutfall útsvars var 14,48% sem er lögbundið hámark þess. 
Álagningarhlutfall fasteignaskatts nam 0,625% vegna íbúðarhúsnæðis og 1,65%
vegna atvinnuhúsnæðis sem er lögbundið hámark. 

Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og
B hluta var jákvæð um 47 milljónir króna en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert
ráð fyrir 4 milljóna króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu.  Rekstrarniðurstaða A
hluta var jákvæð um 37 milljón krónur en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir
jákvæðri rekstrarniðurstöðu að fjárhæð 110 milljónum króna.  Eigið fé
sveitarfélagsins í árslok nam 467 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi,
en þar af nam eigið fé A hluta 705 milljónum króna. 

Í árslok 2012 er skuldahlutfall skv. reglum um fjárhagsleg viðmið
sveitarfélaga, 115% í A hluta og 151% í samanteknum hluta.  Sé fjárfesting í
nýju hjúkrunarheimili dregin frá er hlutfallið 149%.  Skv. 2. mgr. 64. gr.
sveitastjórnarlaga á þetta viðmið ekki að vera hærra en 150%. 

Laun og launatengd gjöld á árinu námu alls 1.661 milljónum króna en
starfsmannafjöldi hjá sveitarfélaginu nam 270 stöðugildum. 

Íbúafjöldi Ísafjarðarbæjar 31. desember 2012 var 3.748 og fækkaði um 7 frá
fyrra ári.