|
|||
2014-07-15 12:10:15 CEST 2014-07-15 12:11:16 CEST REGULATED INFORMATION Marel hf. - FyrirtækjafréttirUppgjör 2. ársfjórðungs 2014 - Kynningarfundur 24. júlí 2014Marel hf. mun birta uppgjör félagsins fyrir 2. ársfjórðung 2014 eftir lokun markaðar þann 23. júlí 2014. Marel boðar til kynningarfundar með markaðsaðilum og fjárfestum, þar sem Árni Oddur Þórðarson, forstjóri, Erik Kaman, fjármálastjóri, og Sigsteinn P. Grétarsson, aðstoðarforstjóri, kynna rekstrarniðurstöðu félagsins á 2. ársfjórðungi 2014. Kynningarfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 24. júlí kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Austurhrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast Morgunverður frá kl. 8:00. |
|||
|