|
|||
2013-12-16 10:16:04 CET 2013-12-16 10:17:05 CET REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirMánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs nóvember 2013Íbúðalánasjóður hefur selt 266 eignir á árinu Það sem af er þessu ári hefur Íbúðalánasjóður selt 266 fasteignir. Á sama tímabili á síðasta ári seldi sjóðurinn 116 eignir. Eignasvið sjóðsins hefur fengið og samþykkt kauptilboð í 109 eignir til viðbótar þessum 266 og vinna tilboðsgjafar að fjármögnun þeirra kaupa. Frá ársbyrjun 2008 hefur Íbúðalánasjóður selt 841 eign. Eignasvið Íbúðalánasjóðs vinnur nú að því að skrá á fasteignasölur allar eignir sjóðsins sem ekki eru í útleigu. Mikið hefur einnig áunnist í vinnslu og skráningu íbúða sem auglýstar hafa verið til leigu. Af 2.607 eignum Íbúðalánasjóðs eru 1.239 í útleigu og 222 eignir teljast með öllu óíbúðarhæfar. Ítreka ber enn og aftur að margar eignir sem skráðar eru auðar og íbúðarhæfar hjá sjóðnum, uppfylla ekki skilyrði sem gerðar eru til leiguíbúða, í sínu núverandi ástandi. Íbúðalánasjóður ver að hámarki 1,5 m.kr. til lagfæringa á eignum sem geta farið á leigumarkað, að öðrum kosti fer eignin í sölu. Sú endurtekna fullyrðing að Íbúðalánasjóður láti fjölmargar hentugar leiguíbúðir standa auðar og engum til gagns, er því röng. Nánari upplýsingar um eignir sjóðsins eru í mánaðarskýrslunni. |
|||
|