2016-10-17 11:08:53 CEST

2016-10-17 11:08:53 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Reykjaneshöfn - Fyrirtækjafréttir

Fjármál Reykjanesbæjar/Reykjaneshafnar


Vísað er til tilkynninga Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar um viðræður við
kröfuhafa um endurskipulagningu fjárhags Reykjanesbæjar og stofnana hans, þar
með talið tilkynninga dags. 7. og 14. júlí sl. 

Viðræður við kröfuhafa Reykjaneshafnar hafa staðið yfir undanfarna mánuði og
eru enn yfirstandandi.  Hluti eigenda skuldabréfa  Reykjaneshafnar hafa því
veit áframhaldandi greiðslufrest og kyrrstöðu til 15. desember nk. og meðan
samningaviðræðum er ólokið. Ekki hafa borist yfirlýsingar allra
skuldabréfaeigenda um hvort greiðslufrestur verði veittur, en verði slíkt
samþykki ekki veitt af öllum mun koma til greiðslufalls á skuldbindingum
Reykjaneshafnar. 

Reykjanesbær og stofnanir hans vilja í því ljósi láta reyna til þrautar hvort
samstaða náist við kröfuhafa um fjárhagslega endurskipulagningu bæjarins og
stofnana hans. Jafnframt verður farið yfir það með Eftirlitsnefnd með fjármálum
sveitarfélaga  hvort svigrúm verði veitt til þess að ljúka framangreindum
viðræðum.