2014-04-10 19:00:19 CEST

2014-04-10 19:01:03 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf. : MP banki annast viðskiptavakt með sértryggð skuldabréf ISLA CB 19


Íslandsbanki  hf.  hefur  samið  við  MP  banka  um  að  hinn síðarnefndi annist
viðskiptavakt  með  ISLA  CB  19, útgefnum  sértryggðum skuldabréfum (e. Covered
Bonds)  Íslandsbanka. Í því  felst að setja  fram daglega kaup-  og sölutilboð í
bréfin,  áður en  markaður er  opnaður, að  lágmarki 20 m.  kr. að nafnverði. MP
banki  mun endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna  frá því að tilboði hefur verið
tekið.  Tilboðin gilda  aðeins innan  dags og  hámarksmunur kaup- og sölutilboða
ákvarðast  af verði gildra tilboða og  má vera 0,8%. Eigi viðskiptavakt MP banka
viðskipti  á einum degi  fyrir 60 m.kr. að  nafnvirði er honum  heimilt að hætta
framsetningu tilboða fram á næsta viðskiptadag.

Viðskiptavaktin gildir frá og með föstudeginum 11. apríl 2014.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187 / 844 3187.
  * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í
    síma 440 3925.


[HUG#1776558]