|
|||
![]() |
|||
2015-08-20 16:37:39 CEST 2015-08-20 16:38:40 CEST REGULATED INFORMATION Eimskipafélag Íslands hf. - ÁrsreikningurEimskip birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2015Kynningarfundur 28. ágúst 2015 Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2015 eftir lokun markaða fimmtudaginn 27. ágúst 2015. Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Gylfi Sigfússon forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, munu kynna uppgjör annars ársfjórðungs og fyrstu sex mánaða 2015. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 28. ágúst 2015 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst kl. 8:30. Boðið verður uppá morgunverð frá kl. 8:15. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors. |
|||
|