2008-01-24 11:25:00 CET

2008-01-24 11:25:00 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsbanki Íslands hf. - Fyrirtækjafréttir

Viðskiptavakt með hlutabréf Landsbankans


Kaupþing banki hf. (Kaupþing) hefur, fyrir eigin reikning, hafið viðskiptavakt
með hlutabréf Landsbankans í viðskiptakefi OMX Nordic Exchange á Íslandi
samkvæmt tilkynningu um viðskiptavakasamning. Samningurinn felur í sér að sett
verða fram daglega kaup- og sölutilboð í hlutabréf Landsbankans áður en
markaður er opnaður sem gilda innan dagsins. 

Markmið samningsins er að auðvelda viðskipti með hlutabréf Landsbankans og
styðja við skilvirka og gagnsæja verðmyndun. 

Skilmálar viðskiptavakasamningsins eru eftirfarandi:

•	Kaupþing skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í
hlutabréf Landsbankans að lágmarki 1.000.000 hlutir og skulu tilboð vera á því
gengi sem Kaupþing ákveður í hvert skipti 
•	Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,0% og frávik
frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3,0% 
•	Hámarksfjárhæð heildarviðskipta sem Kaupþing skuldbindur sig til að vera
þátttakandi að dag hvern skal vera kr. 400.000.000,- að markaðsverði 
•	Kaupþing hóf viðskiptavaktina þann 21. janúar 2008.

Nánari upplýsingar gefur fjárfestatengill Landsbankans, Tinna Molphy í gegnum
netfang ir@landsbanki.is eða í síma 410 7200 / 861 1440.