2009-03-31 10:46:02 CEST

2009-03-31 10:47:07 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - Ársreikningur

- Ársreikningur 2008


Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum er stofnun í eigu sveitarfélaganna á
Suðurnesjum og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Eignarhaldið er
breytilegt og fer eftir íbúafjölda í sveitarfélögum á hverjum tíma. Hlutverk
sambandsins er í meginatriðum að hafa umsjón með og annast ýmiskonar verkefni
sem sveitarfélögin á Suðurnesjum standa sameiginlega að. Starfsemi sambandsins
flokkast því undir að vera á vettvangi 
sveitarfélaga.

Á árinu 2003 seldi sambandið skuldabréf í opnu skuldabréfaútboði fyrir 500
millj. kr. Lánið er verðtryggt, greiðist á tíu árum og ber 5% fasta vexti.
Láninu er ætlað að fjármagna framkvæmdir við Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem
sveitarfélögin þar standa að. Samkvæmt samkomulagi þeirra við ríkissjóð mun
hann greiða hlutdeild í framkvæmdum og annast sambandið fjármögnun þeirra fyrir
hönd sveitarfélaganna. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu
lánsins og sambandið sér um að innheimta hjá hverju þeirrra hlutdeild í
afborgun og vöxtum af láninu á hverjum gjalddaga og standa skil á þeim til
skuldareigenda. Í lok ársins 2008 námu eftirstöðvar lánsins 337,8 millj. kr. og
eftirstöðvar þess voru í fullum skilum. 

Breyting var gerð á reikningsskilaaðferðum sambandsins á árinu 2008 þannig að
tekjur og gjöld vegna verkefna á vegum sambandsins eru nú færð í gegnum
rekstrarreikning. Áður hafði verið haldið utanum stöðu verkefnanna eingöngu í
gegnum efnahagsreikning og staða þeirra færð í gegnum rekstur þegar þeim var
lokið. Samanburðatölum í ársreikningi hefur verið breytt til samræmis.

Tekjuafgangur sambandsins á árinu 2008 nam rúmum 13 milljónum kr. og eigið fé í
lok ársins 2008 nam 63,3 milljónum kr. samkvæmt ársreikningi. Starfsemi
sambandsins var í megninatriðum í samræmi við áætlanir og greiðslur
sveitarfélaganna til sambandsins vegna fjármögnunarverkefna þess voru í skilum. 

Guðjón Guðmundsson er framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og
veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.